Starfsmenn THG / Staff

 
 
 

 

Um THG

THG Arkitektar starfa á sviði arkitektúrs og hönnunar ásamt verkefnisstjórnun. 

Starfsfólk fyrirtækisins býr yfir mikilli og fjölbreyttri reynslu á sviði arkitektúrs, hönnunar og borgarskipulags, ásamt verkefnisstjórnun og eftirliti með framkvæmdum, nýrra og endurbyggðra bygginga og stofnana.

Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur það verið metnaðarmál að sinna þörfum og óskum viðskiptavina á faglegan og hagkvæman hátt. Fyrirtækið hefur verið meðal brautryðjenda í arkitektúr á Íslandi og m.a. er ein sérstaða THG Arkitekta að hafa starfsfólk, sem sérhæfir sig í verkefnisstjórnun og eftirliti.

THG Arkitektar var stofnað af Halldóri Guðmundssyni arkitekt í október 1994.


THG Arkitektar stefna að sjálfbærni og umhverfisvernd í rekstri félagsins og öllum þess verkefnum. THG Arkitektar vilja stuðla að lágmörkun áhrifa neikvæðra umhverfisþátta í starfsemi sinni og hafa þannig umhverfismál í forgangi við ákvarðanatöku.

Umhverfisstefna THG Arkitekta er liður í daglegu starfi fyrirtækisins til að draga úr álagi á umhverfið og hafa þannig jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag með ákvarðanatöku sinni.

‍Helstu áhersluatriði umhverfisstefnu:

  • Lágmarka kolefnisspor í rekstri félagsins og fylgjast með þróun og nýjungum í umhverfismálum.

  • Draga úr kolefnisspori bygginga og umhverfis með meðvitaðri hönnun og áherslu á vistvæn byggingarefni og lausnir, hvarvetna sem því verður við komið.

  • Leggja sérstaka áherslu á skynsama nýtingu auðlinda, lágmörkun úrgangs og aukna endurvinnslu, með það að markmiði að minnka losun gróðurhúslofttegunda 

  • Fræða og viðhalda þekkingu starfsfólks  á viðurkenndum  umhverfisvottunum, svo sem BREEAM og Svaninum.

  • Upplýsa viðskiptavini og veita ráðgjöf og þjónustu, varðandi umhverfisvænar lausnir og vottanir í hönnun og efnisvali.

Jafnlaunastefna

 

 

About THG

THG Architects operate in the field of architecture, design and project management.

The staff holds a varied experience in architecture, design and city planning as well as project management and supervision of building projects, both  new and renovation of buildings and institutions.

From the start, the company has aimed at fulfill the client‘s wishes and needs in a professional and practical manner. The firm has been among forerunners in architecture  in Iceland and one of THG‘s specialties  is  staff which specializes in project management and supervision.

THG architects was founded by Halldór Guðmundsson in October 1994.

 

 
 
 
 

THG Arkitektar
Faxafen 9 - 108 Reykjavík - IS
Simi: (+354) 545 1600
Kt: 440703-2590
thg@thg.is